Fargi var létt af frjálshuga fólki um allan heim þegar múrinn féll og kommúnisminn flaut yfir hrunið steypuvirkið og fjaraði út. En það mikla land Rússland með öllum sínum náttúrukynstrum og kostum fær ekki notið sín, því stjórnkerfið og efnahagslífið nær ekki að þroskast og virðist um þessar mundir einkum lúta lögmálum glæpalýðs og eiturlyfjarbaróna. Blóðpeningar þeirra flæða um Evrópu og skapa þar ótta og öryggisleysi. Menn sem engar leikreglur virða, leitast við að þvo illa fengið fé sitt í fjármálakerfum þjóðanna. Margir stjórnmálaforingjar í Evrópu telja þetta mestu ógnun sem nú sé við að eiga á Vesturlöndum.
Við Íslendingar, sem svo nýlega höfum opnað okkar hagkerfi, þurfum að gæta þess að verða ekki leiksoppur slíkra afla. Efnahagskerfið verður að vera opið og einfalt en jafnframt gagnsætt og byggt á trausti. Lykilorðið er traust.

Davíð Oddsson forsætisráðherra, í ræðu á Hólahátíð í ágúst 1999