Enginn af viðmælendunum virtist gera sér ljóst að Rögnunefndin er varla neitt annað en Pótemkín-tjöld Dags B. Eggertssonar sem hann bjó til í þeim tilgangi að sleppa við að þurfa að ræða flugvallarmálið fyrir kosningarnar vegan yfirgnæfandi andstöðu borgarbúa við lokun vallarins. Settist enda sjálfur í nefndina sem tryggir það að vitræn niðurstaða er ekki væntanleg frá þessum skapningi hans sjálfs utan um þá köllun hans að tortíma flugvellinum til þess að byggja íbúðir sem hafa nauðsynlega nálægð fyrir 101 liðið við búllurnar í Kvosinni.

 

Halldór Jónsson