Það tekur stöðugt lengri tíma fyrir Íslendinga að vinna fyrir sköttum – rúmlega hálft ár. Samband ungrasjálfstæðismanna [SUS] bendir á að næstkomandi mánudag hætti landsmenn að “að vinna fyrir hið opinbera og byrja að vinna fyrir sig sjálfa”. SUS bendir á að 52% útgjalda heimilanna séu skattar og opinber gjöld en almenningur þarf að vinna fyrir þeim frá 1. janúar til 8. júlí á þessu ári.

Í ályktun stjórnar SUS segir:

“Þessu verður að breyta. Ríkið og sveitarfélög þurfa að sýna meiri ráðdeild og spara í rekstri sínum. Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS) hefur sýnt fram á að ríkið geti sparað um 72 milljarða króna, án þess að draga úr útgjöldum til velferðar- eða menntamála (http://goo.gl/PlQsB). Auk þess þarf að einfalda skattkerfið til muna, fækka sköttum og undanþágum, svo að það skili betur hlutverki sínu, þ.e.a.s. að afla ríkinu tekna.

SUS hvetur skattgreiðendur til að hugleiða á þessum degi hvort að þessir gríðarlega háu skattar, sem þeir greiða, skili sér nægjanlega vel í þau verkefni sem eru nauðsynleg og þurfa á skattpeningum að halda.”