Þegar skattgreiðendur huga að því hvernig ríkið fer með peningana þeirra blasa neðangreinar staðreyndir við:
- Á þessu ári er áætlað að útgjöld nemi 583 þúsund milljónum króna.
- Þrisvar sinnum hærri fjárhæð á föstu verðlagi en 1980.
- Útgjöld hafa hækkað um 3,4 milljónir króna að raunvirði á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Þetta jafngildir:
- 56% af árslaunum meðallaunamannsins.
- Ríkisútgjöld jafngilda því að hvert heimili greiði 7,2 milljónir króna eða 600 þúsund krónur á mánuði til ríkisins.
- Á síðasta ári námu meðallaun (heildarlaun) 510 þúsund krónum á mánuði.