Þegar hvítabjörn nam land við bæinn Hraun á Skaga um árið misstu margir alla skynsemi og úr varð gamanleikur sem Dario Fo hefði verið fullsæmdur af. Satíran átti sér fá takmörk en náði hámarki þegar umhverfisráðherra flaug á einkavél noður í land til að fylgjast með og sent var eftir ónýtu búri frá Danmörk til að setja dýrið í. Allt kom fyrir ekki en nú er hvítabjörnkominn á land við Húnaflóa ef að líkum lætur.

Vonandi hefst ekki annar gamanleikur. Sigurður Sigurðarson setur hlutina í samhengi:

“Þúsundir manna búa við Húnaflóa. Hver og einn af þeim getur verið í hættu. Því er aðeins ein regla, skjóta ísbjörn um leið og hann sést áður en hann veldur fólki eða búfénaði skaða. Ég ráðlegg öllum að hafa viðbúnað og fylgjast með umhverfinu. 

Undantekning frá þessari reglu er auðvitað til. Hún felst í því að ávarpa ísbjörninn kurteislega, bjóða hann velkominn til Íslands, kanna hvort hann hafi eitthvað tollskylt meðferðis og biðja hann loks að hinkra við þangað til skotmaður með deyfilyf og rimlabúr kemur frá Danmörku. Á meðan er sjálfsagt að bjóða birninum upp á rauðvín með ritz kexi og ostum og spjalla síðan dálítið um villt dýralíf.

Önnur ráð eru auðvitað til. Einhver sagði við mig að öruggast væri að vera ekki einn á ferð þegar maður mætir ísbirni, helst að vera með einhverjum sem hleypur hægar en maður sjálfur …”