Fjarðaál flutti út vörur fyrir um 95 milljarða króna á síðasta ári. Ál nemur um 40% af öllum vöruútflutningi frá landinu, sem er svipað hlutfall og útflutningur sjávarafurða, og nemur hlutur Fjarðaáls í honum um 17 prósentum. Í frétt á mbl.is kemur fram að ekkert annað fyrirtæki flytur út meira vörumagn.

Ívar Pálsson útflytjandi setur þetta í gott samhengi á bloggsíðu sinni:

“Starfsemi Fjarðaáls og annarra íslenskra álframleiðslufyrirtækja sannar sig enn sem framlag Íslendinga til betri heims. Furðu vekur að fólk sem telur sig umhverfissinnað hér á landi skuli níða skóinn af íslenskum  áliðnaði, á meðan erlendir umhverfissinnar horfa helst til þess að starfsemin erlendis verði eins og á Íslandi einhvern tíma í fjarlægri framtíð.

Álið og útfluttar sjávarafurðir eru hvort um sig 40% útfluttra afurða þjóðarinnar. Þetta eru traustu súlurnar tvær, eins og Öndvegissúlur Ingólfs Arnarsonar í merki Reykjavíkur. Fólk ætti að þakka forfeðrum sínum og samtímamönnum, sem náðu að reisa þessar súlur, í stað þess að höggva stöðugt í þær með meitli eins og Jóhanna og Steingrímur, eða kaffihúsagengi þeirra í Reykjavík 101.”