Þekkir þú sögu haftaáranna? Þegar öll verslun á Íslandi var hneppt í svo harðar viðjar að ekki mátti flytja bók til landsins án þess að biðja yfirvöld um leyfi? Þegar ávextir sáust ekki árum saman og fólk stóð næturlangt í biðröðum í von um að geta keypt sér eitt par af bomsum? Þegar innflutningsleyfi fyrir bílum gengu kaupum og sölum fyrir hærra verð en sjálfur bíllinn kostaði? Þegar menn voru fangelsaðir fyrir að reisa sér bílskúr í óþökk yfirvalda? Þegar ríkið rak prentsmiðju og vélsmiðju og setti á fót ótal einkasölur – viðtækjaeinkasölu, bifreiðaeinkasölu, raftækjaeinkasölu og grænmetiseinkasölu? Þegar pólitísk spilling grasséraði, smygl og svartamarkaður – og voldug hagsmunasamtök risu upp úr öllum áttum til að tryggja hlut sinn í haftakerfinu?

Haftatímabilið er jafnan talið standa frá 1930 til 1960 þegar viðreisn efnahagslífsins hófst í anda frjáls markaðsbúskapar. Í þessari bók segir Jakob F. Ásgeirsson sögu haftaáranna á einstaklega læsilegan hátt. Bókin kom fyrst út árið 1988 en er nú til í kilju.