Björn Bjarnason, fyrrverandi menntamálaráðherra, segir að stytting náms til stúdentsprófs sé á kostnað sveigjanleika og frjálsræðis innan framhaldsskólans. Afleiðingin verði einsleitni skóla. Þá gagnrýnir Björn að ákvarðanir „séu teknar um framtíð skóla í eigu ríkisins án þess að þeir sem hlut eiga að máli sem kennarar og nemendur hafi verið með í ráðum svo að ekki sé minnst á bæjar- eða sveitarstjórnir eins og kemur fram í umræðum um Iðnskólann í Hafnarfirði eða sameiningu skóla á norðurlandi eystra”.

Í dagbókarfærslu lýsir Björn undrun sinni á hve litlar opinberar umræður hafi orðið vegna breytinga á framhaldsskólanum og styttingu náms:

„Hún var vissulega til skoðunar þegar ég var menntamálaráðherra fyrir 20 árum. Við fyrstu sýn þótti mér hún góðra gjalda verð en snerist síðan hugur við nánari athugun vegna þess að ég taldi sveigjanleika og frjálsræði innan framhaldsskólans mikilvægara markmið. Að því sé kastað fyrir róða í þágu einsleitni er miður eins og rækilega kemur fram í samtali okkar Lindu Rósar.”

Björn er með umræðuþátt á ÍNN og var Linda Rós Michaelsdóttir gestur hans í þessari viku:

„Þegar ég ræddi við Lindu Rós kom í hugann hve takmarkaðar opinberar umræður eru um þessar mundir um meginstefnuna í menntamálum. Fréttir berast um að ákvarðanir séu teknar um framtíð skóla í eigu ríkisins án þess að þeir sem hlut eiga að máli sem kennarar og nemendur hafi verið með í ráðum svo að ekki sé minnst á bæjar- eða sveitarstjórnir eins og kemur fram í umræðum um Iðnskólann í Hafnarfirði eða sameiningu skóla á norðurlandi eystra.”

Í dagbókarfærslunni bendir Björn á að um „stórpólitískar ákvarðanir um fjölmenna opinbera vinnustaði” sé að ræða:

„Þær ganga ekki upp án samráðs og samvinnu. Buslugangurinn í kringum Fiskistofu og flutning hennar ætti að vera ráðherrum og ráðuneytum víti til varnaðar.”