Hvar er komið smekk og dómgreind þeirra sem stýra Ríkissjónvarpinu? Hverjum dettur í hug að bjóða almennum áhorfanda upp á aulaklambur eins og Hraðfréttir? Það hefur stundum heyrst að dagskrá RÚV standist vel samanburð við útsendingar skandinavísku ríkisstöðvanna og annarra Vestur-Evrópu-stöðva. Ef það hefur einhvern tíma verið þá er það liðin tíð. Gelgjuklám og vandræðaklastur getur hugsanlega höfðað til einhverra, en það ristir grunnt og er lítið uppbyggjandi. Enn færa höfundarnir sig upp á skaftið, útsendingar fara í loftið, þar sem við er haft grófasta klám, eins og tíðkaðist á togurum og annars staðar þar sem menn voru krepptir af kynþörf. Hefur nokkurn tíma verið athugað hverjir horfa á Hraðfréttir? Það læðist að manni sá grunur að enginn njóti þeirra eins og höfundarnir. Hvað um það. RÚV er menningarstofnun og ætti ekki að ýta undir ómerkilegt hnoð. Ási í Bæ kallaði slíkt hjal »neðanþindarþrugl« og fannst það ekki dýrt yrkisefni. Ekkert leikfélag mundi setja þetta á svið.

Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður í Morgunblaðinu 19. maí 2015