Eins og margir vita hef ég að undanförnu átt orðastað við DV vegna framferðis blaðsins í hinu svokallaða lekamáli. Hef ég orðið var við að mörgum hefur þótt þetta þarft framtak. Löngu væri tímabært að taka á móti lágkúrulegum málflutningi þessa blaðs og segja á því deili. Blaðið, sem byggir skrif sín að stórum hluta á refsiverðu framferði við birtingu upplýsinga sem leynt eiga að fara samkvæmt lögum, gat engu svarað ásökunum mínum.

Jón Steinar Gunnlaugsson