Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor segir forsetakosningarnar hafi að nokkru leyti snúist um uppgjör stjórnar og stjórnarandstöðu. Vitað sé að „Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon unnu á bak við tjöldin að því, að Þóra færi fram, og þau studdu hana með ráðum og dáð”. Hannes gefur Þóru Arnórsdóttur góð meðmæli:

„Hún hefur til dæmis jafnan verið óhlutdræg í starfi, þótt vinnustaður hennar, Ríkisútvarpið, dragi mjög taum stjórnarinnar.”

Hannes segir að sjálfstæðismenn og framsóknarmenn hafi metið það við Ólaf Ragnar, „hversu skörulega hann kemur jafnan fram fyrir hönd Íslands erlendis” og því stutt hann:

Það er eins og hann vilji gæta hagsmuna þjóðarinnar af miklu meiri alvöru en þau Jóhanna og Steingrímur, sem kikna í hnjáliðum, þegar þau heyra erlenda tungu talaða, og vilja eta úr lófa Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Kjósendur Ólafs Ragnars þekkja gallana í fari hans og vona, að miklir kostir verði þeim yfirsterkari.

Sigur Ólafs Ragnars er ósigur stjórnarinnar og sigur stjórnarandstöðunnar, þótt hún hafi auðvitað ekki sent hann fram eða staðið að framboði hans.”