Vefþjóðviljinn segir að óhætt sé að velja 750 milljörðum króna á að frétt Stöðvar 2, um fund Áfram-hópsins um Icesave-skuldir Landsbankans, verði lengi í minnum höfð. Áfram-hópurinn barðist fyrir því að Icesave-samningarnir yrðu samþykktir.

The video cannot be shown at the moment. Please try again later.

Í sturrti umfjöllun Vefþjóðviljans segir að meðal þeirra sem hafi staðið að blaðamannafundi Áfram-hópsins hafi verið Heiða Kristín Helgadóttir, núverandi frambjóðandi, framkvæmdasjtóri og stjórnarformaður Bjartrar framtíðar, Árni Finnsson, Guðmundur Gunnarsson, Margrét Kristmannsdóttir, Benedikts Jóhannesson og Hörður Torfason. „Þau tóku sér stutt hlé frá baráttunni fyrir aðild Íslands að ESB til að beita sér fyrir því að Icesave skuldirnar yrðu hengdar á Íslendinga,” skrifar Vefþjóðviljinn, sem skýtur síðan föstum skotum á fjölmiðla:

„Fjölmiðlarnir mættu samviskusamlega á fundinn. Stöð 2 sagði frá fundinum og er óhætt að veðja 750 milljörðum króna á að þessi frétt verði lengi í minnum höfð.

Þegar Advice hópurinn efndi til samskonar fundar til að kynna málstað sinn mætti enginn blaðamaður.”