Home / Klippt og Skorið /
Besservissera-búrókratabann
Eftir nokkra daga verður bannað að selja glóperur. Bannið kemur til vegna reglna um orkusparnað í aðildarríkjum EES. Ívar Pálsson útflytjandi er ekki hrifinn og segir að bann við „sölu
glópera er dæmigert besservissera-búrókratabann á sjálfsagðri nauðsynjavöru, þarfaþingi hér á klakanum en úthrópað í blokkum Brussels”. Á bloggsíðu sinni segir Ívar að „Kratareglukórinn” hafi risið upp og fari með gamalkunnugt viðkvæði.
Ívar spyr hvað sé „eðlilegra en að kaupa venjulega gamaldags ljósaperu, sem kostar sáralítið, lýsir og hitar upp heimilin”:
„Bann við slíkum stórhættulegum viðskiptum er í anda þeirrar trúar að Mið- Evrópubúi viti mun betur en Íslendingur hvernig lífsstíl landinn ætti að temja sér í stóru og smáu: nota lítið vatn, rafmagn og hita, þótt það allt sé bráðnauðsynlegt til þess að njóta lífsins hér til fullnustu, njóta heilsu og forðast þannig þunglyndi sem sótt getur á heimskautabúa.”
Til hvers er bannið sett?, spyr Ívar og svarar:
„Ekki getur það verið vegna heildarsparnaðar, því að hlandódýrt er að kveikja á glóperu hér í því herbergi sem gengið er inn í, með fullri birtu frá upphafi og slökkt þegar gengið er út. Hitinn frá perunni minnkar hitunarkostnað í herberginu. Kostnaðurinn við að urða hana er síðan í lágmarki. Allt annað eru dýrari lausnir, sérstaklega sparperur sem þarf síðan að fara með eins og mannsmorð vegna kvikasilfurs með ærnum kostnaði, ef perunni er ekki bara hent í ruslið. Kostnaðspörun með banninu er afsökun, ekki ástæða.”
Ívar heldur því fram að verið sé að beygja lífstíl almennings undir regluvaldið og það sé raunveruleg ástæða bannsins:
„Þar gildir víst einu hverjar aðstæður eru, rússneska peran í fjósinu hjá afdalabóndanum við norðurheimskautsbaug um jólin eða gyllta 20- peru kóngaljósakrónan í veislusal ráðherranefndarinnar í Madríd þegar 40°C molla er utandyra: Eitt skal yfir alla ganga, með góðu eða illu, eins og hér er gert.”
Vonandi bara ein pera
Ívar heldur áfram:
„Þegar hér er komið rís Kratareglukórinn upp á afturlappirnar og fer með gamla viðkvæðið: „En við samþykktum þetta í EES!“. Þar gleymist að sá samningur er milliríkjasamningur þar sem okkur er í sjálfsvald sett hvað við samþykkjum sem lög eða ekki, enda kom það margoft í ljós áður en núverandi ESB- aðildarstjórnvöld samþykktu sem lög á Íslandi hvað sem sent var úr eyðimörkinni sunnan úr löndum.
Frjáls verslun með vörur sem valda ekki skaða er ein af undirstöðum heilbrigðs samfélags. En því miður hafa núverandi stjórnvöld ekki grænan grun um það hvernig halda beri samfélagi heilbrigðu og því verðum við að kaupa upp birgðir af glóperum til þess að endast fram að stjórnarskiptum. Vonandi er það bara ein pera!”


