Hús Vinstri grænna stendur í björtu báli

 

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi sagði að það væri eins og að leigja herbergi í brennandi húsi, að ætla að ganga inn í Evrópusambandið. Þetta hafa fjölmargir félagar í Vinstri grænum gert sér lengi grein fyrir og hafa því alla tíð verið á móti aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þeir standa hins í brennandi húsi Vinstri grænna sem félagar þeirra lögðu sjálfir eld að með því að samþykkja kröfu Samfylkingarinnar um að óska eftir aðild að Evrópusambandinu. Spurningin er hvort þeir ætli sér að flýja hið brennandi hús eða reyna að slökkva eldana áður en gengið verður til kosninga. Það mun aldrei takast nema þingmenn flokksins lýsa formlega yfir að þeir hafi látið af stuðningi við aðildarvirðurnar.

Gísli Árnason, formaður Vingri grænna í Skagafirði, hefur ítrekað gagnrýnt forystu flokksins vegna Evrópumála og í Morgunblaðinu í dag, föstudag, beinir hann orðum sínum að Steingrími J. Sigfússyni:

„Í vetur lýstum við yfir vantrausti á forystu flokksins og ég sé ekki annað en að formaðurinn þurfi að fara að íhuga stöðu sína í ljósi þeirra atburða sem nú eiga sér stað.“

Gísli á von á því að komandi vetur verði erfiður – traust milli forystu og almennra flokksmanna skorti:

„Mér finnst þetta vera spurning um traust og það er ekki lengur til staðar.“

Formaður VG í Skagafirði óttast að yfirlýsingar ráðherra VG og einstakra þingmanna um að endurskoða eigi umsóknina, séu aðeins orðin tím:

„Þessir sömu aðilar sem nú eru að snúa við blaðinu eru nýbúnir að samþykkja aðlögunarstyrki að sambandinu [IPA-styrkir] og í maí þá höfnuðu þeir að þjóðin hefði aðkomu að málinu svo ég sé engar breytingar nema þessar yfirlýsingar.“

Anna Ólafsdóttir Björnsson, varaþingmaður VG, hefur sömu áhyggjur og Gísli Árnason. Hún skrifar á bloggsíðu sín:

„Mörg skoðanasystkini mín og vinir hafa horfið úr VG, því miður. Sjálf er ég orðin langþreytt á að finnast ég tala við tómið. Og núna, þegar allt í einu virðist rofa til í baráttugleði forystu VG gegn ESB-ferlinu, af hverju er ég þá full efasemda um að þetta muni snúast rétt?”

Eftir viku hefst flokksráðsfundur Vinstri grænna og það er við hæfi að hann verður haldinn að Hólum í Hjaltadal sem er gamall heimavöllur Jóns Bjarnasonar.