Home / Klippt og Skorið /
Draumaríkisstjórn Ragnars Arnalds og Jóns Bjarnasonar
Draumaríkisstjórn Ragnars Arnalds og Jóns Bjarnasonar er samsteypustjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þetta staðhæfir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í grein sem birtist í Fréttablaðinu. Ragnar Arnalds er fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins og ráðherra ogtók þátt í stofnun Vinstri grænna. Jón Bjarnason var ráðherra fram að síðustu áramótum.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hefur lýst því yfir að hún sé reiðubúin til að taka að sér forystuhlutverk í flokknum. Grein hennar í Fréttablaðinu um Vinstri græna er því rétt að lesa með þennan ásetning þingmannsins í huga. Sigríður Ingibjörg segir að nú sé „söngurinn” um að draga umsóknina um ESB-aðild til baka og vísar þar til ummæla þingmanna og ráðherra VG.
Í greininni heldur Sigríður Ingibjörg því fram að Vinstri grænum hafi staðið til boða að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki árið 2009. Það hafi verið draumaríkisstjórn Ragnars Arnalds og Jóns Bjarnasonar sem hefði ekki óskað eftir aðild að Evrópusambandinu:
„Ef marka má djúpa speki þeirra félaga og ýmissa annarra minni spámanna í forystu flokksins, væri staða Vinstri græns augljóslega mun betri nú. Steingrímur J. og Lilja Mósesdóttir væru sjálfsagt perluvinir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason hrókar alls fagnaðar í þingflokknum og Jón Bjarnason enn þá ráðherra. Eða hvað?”
Sigríður Ingibjörg segir að „draumaríkisstjórnin” hafi ekki orðið að veruleika sumarið 2009 en geti orðið það sumarið 2013. „Miðað við málflutning margra þingmanna, og jafnvel ráðherra, vinstri grænna allar götur síðan 2009 voru það mistök að mynda” ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna.
Í lok greinarinnar segir Sigríður Ingibjörg:
„Það hefur margt breyst síðan 2009. Eitt hefur þó ekki breyst: Þau vandamál sem aðild að ESB getur hjálpað okkur að leysa eru enn til staðar og hverfa ekki þótt samningaviðræðum verði slitið. Þetta er kjarni málsins.”
Ekki kemur fram í grein Sigríðar Ingibjargar hvaða vandamál hér á landi muni leysast með aðild að Evrópusambandinu.


