Dagheimilakynslóðin á Alþingi

 

Stefanía Jónasdóttir á Sauðárkróki gengur hreint til verks í skrifum sínum. Hún segir Íslendinga ekki búa í réttarríki enda megi þeira þola hverja vitleysuna af annarri. Í bréfi til Morgunblaðsins segir Stefaní að allt sé “allt leyfilegt í stjórnlausu landi, ekkert siðferði, engin ábyrgð” og stjórnmálamenn skari “eld að eigin köku, græðgi og aftur græðgi”.

Stefanía segir að það sé eitthvað mikið að hjá stjórnvöldum og það verði dýrkeypt. Stefaní kryfur vandann og skrifar:

“Það er eitthvað mikið að hjá stjórnvöldum þessa lands, og það mun verða okkur dýrkeypt. Vandi Alþingis er að inn á þing er komin dagheimilakynslóðin, alin upp á stofnunum frá tveggja ára aldri og hún heldur að lífið sé eins og leikskóli. Annar vandi, við stjórnvölinn er fólk sem er búið að bíða í mörg ár eftir völdunum og því er efst í huga endurkjör. Vandi þrjú er stórvandi, en það er skortur á lífsgreind meðal þingmanna og -kvenna. Vandi fjögur er alltof margir lögfræðingar og hagfræðimenntað fólk sem situr þarna á jötunni. Þið eruð öll að flækja og búa til vitleysu í líf, sem á að vera einfalt. Svo búum við í réttarríki? Ég segi nei, það er bara fyrir þá útvöldu. Mennt er máttur sé hún ekki misnotuð, og til að misnota hana ekki þarf að hafa snefil af lífsgreind með.”