Samfylkingin getur margt lært af Þorsteini Pálssyni

 

Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með því, hvernig athugasemdir Þorsteins Pálssonar í umfjöllun hans um aðildarumsóknina að ESB hafa þróazt síðustu daga. Í upphafi lagði hann áherzlu á hina veiku stöðu í pólitíkinni hér heima, sem gerði það að verkum, að hægja þyrfti á aðildarumræðunum að hans mati. Í gær gekk hann lengra í samtali við Ríkisútvarpið og vísaði líka til stöðunnar á fjármálamörkuðum og í efnahagsmálum í Evrópu almennt.

Styrmir Gunnarsson