Jón og Stefán

 

Það er afar mikilvægt fyrir alla flokka að vera með skýra stefnu og það er það sem Framsókn hefur unnið að síðustu misseri, að skerpa stefnuna og verða skýr valkostur þeirra sem ekki getað hugsað sér óhefta frjálshyggju eða alþjóðlegan sósíalisma núverandi ríkisstjórnarflokka.

Ég á ekkert sökótt við Jón Sigurðsson og virði það að hann tók við flokknum í erfiðri stöðu. Ég lít svo á að hann sé að gera upp sinn tíma sem formaður Framsóknarflokksins en ég sé þann tíma því miður ekki með sömu augum og hann og enn síður sé ég framtíðina með sömu augum. Stefán Ólafsson er líklega á leið í framboð.

Gunnar Bragi Sveinasson