Þjófnaður á skattpeningum borgarinnar og borgarstjóri þegir

 

Gríðarlegur hallarekstur Hörpu kemur borgarstjóranum í Reykjavík ekkert við og þó ber Reykjavíkurborg ábyrgð á rekstrinum ásamt ríkinu. Yfir 400 milljóna króna halli og borgarstjórinn þegir þunnur hljóði. Fjölmiðlar reyna ekki einu sinni að leita álits hans.

Sigurður Sigurðarson vekur athygli á þessu á bloggsíðu sinni og veltir því fyrir sér hvort Jón Gnarr Kristinsson, sé enn “enn í fríi í Noregi, má vera að hann sé að máta búninga fyrir hinsegin daga, hann kann að vera að semja opnunarræðu fyrir menningarnótt, hugsanlega er hann að skipuleggja framboð til þings”. Síðan skrifar Sigurður:

 „Vissulega er starf borgarstjórans í Reykjavík mikilvægt. Það er þó hvorki réttlátt né sanngjarnt að hlífa núverandi borgarstjóra við rökræðum um starf hans eða verkefnum hans. Annað hvort sinnir hann starfinu eða segir af sér.

Fjölmiðlar hafa ekki leyfi til að hlífa manninum og leita annarra í borgarkerfinu. Sé það gert þarf að koma fram í fréttinni að ekki hafi náðst í borgarstjóra eða hann ekki gefið kost á viðtali. Enginn fjölmiðill hefur sinn skyldu sinni að þessu leyti.

Jón Kristinsson hefur hingað til komist upp með að gera ekki annað í starfi sínu en að hirða launin og fara svo í frí. Það er hvorki réttlátt né sanngjarnt. Raunar má með rökum kalla þetta þjófnað á skattpeningum.”