Home / Klippt og Skorið /
Orðhelgilsháttur fyrrum ráðherra og nú formanns allsherjarnefndar
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra og núverandi formaður allsherjar- og menntamálanefndar, segir að mikill áhugi hafi verið „á því að reyna að fara sem lengst” með svokallað lyklafrumvarp sem Lilja Mósesdóttir lagði fram á þingi ásamt fleiri þingmönnum. Hvað á þingmaðurinn eiginlega við? Að fara „sem lengst” með frumvarp skiptir engu ef það dagar uppi á þingi líkt og reyndin varð með lyklafrumvarpið en þar stóð ríkisstjórnin í vegi fyrir framgangi þess. Annað hvort er Björgvin fylgjandi því að frumvarpið verði samþykkt sem lög eða ekki. Eða stefnir hann að því að koma frumvarpinu (þegar það kemur fram á nýju þingi) aftur „sem lengst” og þá jafnvel til þriðju umræðu og láta það daga uppi að nýju?
Í samtali við mbl.is segir Björgvin G:
„Við fjölluðum töluvert um frumvarpið í nefndinni og það var mikill áhugi á því að reyna að fara sem lengst með það en við náðum þó ekki lengra með það en þetta.“
Er nema von að kjósendur séu búnir að fá sig sadda af orðhengilshætti, orðaleikjum og fögrum orðum. Vilborg G. Hansen er með skýr skilaboð til þingmanna: Þið verði ekki kosnir aftur með sömu klisjurnar og loforðin. Vilborg skrifar á bloggsíðu sína:
„Það eru greinilega prófkjör í aðsigi. Eins og væri ekki búið að samþykkja þetta lyklafrumvarp ef ætlunin væri að gera það. Nú á að skreita sig með fjöðrum sem munu aldrei fljúga og gabba kjósendur til að kjósa sig enn og aftur fyrir sömu klisjurnar!! Hvernig væri að koma einu sinni fram og segja: “búið er að samþykkja lyklafrumvarpið á þingi”. Grjóthalda annars kjafti þar til málið er komið í höfn (fyrirgefið orðbragðið). Það eru allir orðnir hundleiðir á sömu tuggunum aftur og aftur og fólk er og verður löngu búið að missa allt sitt áður en stjórnvöld koma sér að því að framkvæma. Það er fáránlegt að þingmenn tali aftur og aftur um sömu hlutina, lofi sömu loforðunum og aldrei gerist neitt!
Þingmenn núverandi verða að fara að átta sig á því að þau verðið ekki kosin aftur fyrir sömu loforð og búið er að svíkja aftur og aftur og fólk búið að bíða eftir aðgerðum síðan hrundi. Þetta er fullreynt hjá ykkur!
Ég ætla rétt að vona að kjósendur verði gagnrýnir á fyrri störf þeirra sem bjóða sig fram í prófkjörum í haust og vetur.


