Þreföldun útgjalda
Útgjöld hins opinbera hafa tæplega þrefaldast frá 1980 á föstu verðlagi. Á síðasta ári námu þau um 751 milljarði króna en árið 1980 voru útgjöldin tæplega 258 milljarðar samkvæmt tölulegum upplýsingum Hagstofunnar.
Þessi útgjaldaaukning jafngildir því að útgjöld hins opinbera hafi hækkað um tæpar fimm milljónir króna á hverja fjögurra manna fjölskyldu eða um 408 þúsund krónur á mánuði.
Á árunum 1980 til 2011 nam uppsafnaður halli á rekstri hins opinbera 525 milljörðum króna.


