Helstu blýantsnagarar íslenska stjórnkerfisins

 

Almennir flokksmenn hafa gagnrýnt flokksræði innan Vinstri grænna. Á síðasta flokksráðsfundi héldu þeir því fram að mjög væri þrengt að málfrelsi flokksmanna og þeim gert erfitt fyrir að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Síðar í ágúst verður haldinn flokksráðsfundur og svo virðist sem gengið sé enn lengra en áður til að koma í veg fyrir að gagnrýnisraddir á forystuna fái að hljóma. Að minnsta kosti er þetta skoðun þeirra sem standa að Vinstrivaktinni. Jafnvel það að sitja undir örstuttum ræðum almennra flokksmanna er forystu VG of erfitt,” segir á bloggsíðu Vinstrivaktarinnar. Því er haldið fram að forystan sé á flótta undan grasrótinni.

Sigurður Sigurðarson lýsir Vinstri grænum í pistli og heldur því fram að forystumenn flokksins séu orðnir helstu blýantsnagarar íslenska stjórnkerfisins”:

Fyrir nokkrum árum voru óskaplega margir á þeirri skoðun að Vinstri grænir væru hinir heiðarlegu og óspjölluðu í íslenskum stjórnmálum. Það álit hefur nú hrunið af flokknum þegar hann er orðinn einn helsti bandamaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, styður Evrópusambandsaðildina, gleymir að rannsaka meinta „aðild“ Íslands að innrásinni í Írak, stendur staðfastur að baki Nató í loftárásum á Líbíu og hernámi Afganistans og forystumenn flokksins eru orðnir helstu blýantsnagarar íslenska stjórnkerfisins.

Og svo vissir eru forystumenn flokksins orðnir um afstöðu eigin flokksmanna að þeir þurfa ekki einu sinni að hlusta á þá. Líklega er nú þegar búið að færa til bókar samþykktir og umræður.

Hvers konar flokkur er VG að verða? Einræðið veður uppi og enginn segir neitt …

Nema Ragnar Arnalds. Hinir þegja og láta allt yfir sig ganga sem þeir áður börðust gegn.”