Í frjálsu falli
Jóhanna Sigurðardóttir hefur verið ráðherra samfleytt frá maí 2007 en þar áður hafði hún verið ráðherra í sjö ár frá 1987 til 1994. Þegar Jóhanna tók sæti sem félagsmálaráðherra í ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins í maí 2007 var hún einhver vinsælasti stjórnmálamaður landsins og naut traust umfram flesta aðra.
Samkvæmt könnun Gallup í september 2007 voru 70,3% landsmanna ánægð með störf Jóhönnu í félagsmálaráðuneytinu. Í apríl og september 2008 voru 60% landsmanna ánægð með Jóhönnu. Þegar hún tók við sem forsætisráðherra í febrúar 2009 jókst ánægjan og um 65,4% voru ánægð sem nýjan forystumann ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. Frá þeim tíma hefur Jóhanna verið í frjálsu falli í hugum kjósenda.
Samkvæmt könnun Gallup í mars 2012 um ánægju með störf ráðherra voru aðeins 18 af hverjum 100 kjósendum ánægðir með forsætisráðherra. Þannig höfðu sjö af hverjum tíu, sem sögðust ánægðir með Jóhönnu í febrúar 2009, snúið baki við henni. Aðeins Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra naut minni vinsælda en Jóhanna.
Líkt og Jóhanna hefur Steingrímur J. Sigfússon, þurft að sætt sig við njóta síminnkandi álits í hugum landsmanna. Þegar hann tók við völdum í fjármálaráðuneytinu í febrúar 2009 voru 44,5% landsmanna ánægð með störf hans. Álit kjósenda breyttist lítið fyrr en í nóvember 2011 þegar ánægjan var komin niður í rétt tæp 31%. Síðasta könnun Gallup bendir til að aðeins tæp 23% séu ánægð með störf Steingríms J. Þannig höfðu einn af hverjum tveimur skipt um skoðun á störfum Steingríms J. Sigfússonar á rúmum þremur árum.


