Saga einnar dáðustu konu heims

 

Í rúma tvo áratugi hefur Aung San Suu Kyi, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels 1991, verið ein dáðasta kona heims. Barátta hennar fyrir mannréttindum  og  lýðræðisumbótum  í  heimalandi  sínu,   Búrma,   hefur vakið heimsathygli. Lýðræðishreyfing hennar vann afgerandi kosningasigur árið 1990 en herforingjastjórnin, sem ræður ríkjum í þessu ógæfusama landi, hefur komist upp með að hundsa þau kosningaúrslit í tvo áratugi. Þúsundir óbreyttra borgara hafa verið myrtar og allir helstu stjórnarandstæðingar hafa verið fangelsaðir. Sjálfri var Aung San Suu Kyi haldið langdvölum í stofufangelsi á heimili sínu í Rangoon og meinað að hafa samskipti við fjölskyldu  sína.

Í  þessari  bók  segir  Jakob  F. Ásgeirsson sögu þessarar einstæðu hugsjónakonu sem á fáeinum vikum varð sameiningartákn þjóðar sinnar andspænis grimmilegri kúgun allsráðandi herforingjaklíku.

Vaclav Havel, fyrrverandi forseti Tékklands:

„Með því að helga líf sitt baráttunni fyrir mannréttindum og lýðræði í Búrma berst Aung San Suu Kyi ekki aðeins fyrir réttlæti til handa samlöndum sínum heldur öllum þeim sem vilja vera frjálsir til að ákveða eigin örlög.“

Desmond Tutu erkibiskup:

„Líkamlega er hún smávaxin og fíngerð en andlega og siðferðilega er hún risi.“

Bono í U2:

„Helgimynd siðferðilegs hugrekkis.“

 

 
Saga einnar dáðustu konu heims

Tengt efni