Klippt og skorið 18. júní

Ný niðurlæging í aðsigi

Styrmir Gunnarsson telur að ný niðurlægin íslenskrar utanríkisþjónustu sé í aðsigi. Í pistli á Evrópuvaktinni segir Styrmir að tilraunin að fá Ísland kjörið í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi verið mesta niðurlæging sem utanríkisþjónusta Íslands hefur orðið fyrir. Orðrétt segir Styrmir:"Þar fór saman alvarlegur dómgreindarskortur, hroki og að því er virtist voru bæði þáverandi...

Meira »
Klippt og skorið 16. júní

Hvaða háskólamenn eru óháðir?

Fjölmiðlar eru duglegir við að leita til háskólamanna eftir áliti þeirra á ýmsum málum. Slíkt er eðlilegt og yfirleitt gott. En vandinn er sá að margir háskólamanna eru ekki eins óháðir og þeir vilja vera láta. Sumir afla stóran hluta tekna sinna með ráðgjöf og vinnu fyrir framkvæmdavaldið - sitjandi ríkisstjórn. Þeir telja það hins vegar eðlilegt að koma fram í fjölmiðlum sem óháðir sérfræðingar. Vegna þessa lagði...

Meira »
Klippt og skorið 15. júní

Hin nýja valdastétt

 Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, óskaði eftir utandagskrárumræðu um störf skilanefnda bankanna 9. júní síðastliðinn. Ég tók þátt í umræðunni og sagði meðal annars:"Við skulum bara tala hreint út. Skilanefndir hinna föllnu banka og sparisjóða eru hin nýja valdastétt á Íslandi. Það er ólíðandi að slík valdastétt sé og starfi með þeim hætti sem hún gerir. Hún er öllum...

Meira »
Klippt og skorið 9. júní

Þorvaldur sár vegna leikrits

Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði, er greinilega sár vegna þess að hann var ekki ráðinn seðlabankastjóri á síðasta ári. Hann telur að ráðning Más Guðmundssonar í stöðuna hafi verið leikrití leikstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Ég get varla verið ósammála þessu.Pressan hefur það eftir Þorvaldi að hann hafi frá upphafi litið svo á að það hafi verið ákbeðið löngu fyrirfram hver yrði skipaður...

Meira »
Klippt og skorið 8. júní

Vandræði Jóhönnu

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra grefur sér æ dýpri gröf. Launamál Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra er einhver sérkennilegasti farsti sem ég hef orðið vitni að. Jóhanna kannast ekki við neitt og vísar allri ábyrgð á 400 þúsund króna launahækkun seðlabankastjóra frá sér. Í makalausu Kastljósviðtali í gærkvöldi vildi hún ekki gangast við því að tilmæli hefðu komið frá...

Meira »
Leiðari 14. nóvember 2008

Steinar úr glerhúsum

Sérkennilegt er hvað forystumenn í atvinnulífinu eru fljótir að kenna öðrum um allt það sem miður hefur farið í íslensku efnahagslífi á undanförnum vikum og mánuðum. Margir þeirra tala líkt og saklausir hvítvoðungar sem ekkert hafa gert, annað en reka sín fyrirtæki í svita sín andlitis og með engum hætti tekið dátt í gleði og skuldafylleríi síðustu ára. Einn þessara manna er Hermann Guðmundsson, forstjóri N1 sem á fundi Samtaka atvinnulífsins á fimmtudag.

Hermann Guðmundsson gagnrýndi stjórnvöld harkalega á fundinum og taldi þau hafa sofið á verðinu. Vel hefði verið hægt að afstýra hruni bankanna. Dauðastríð bankanna hafi leitt til hruns krónunnar og óðaverðbólgu, okurvaxta, gjaldeyrisskort og hruns á hlutabréfum vegna lausafjárskorts. 

Hér verður ekki deilt við Hermann, að í mörgu hafa íslenskum stjórnvöldum verið mislagðar hendur við stjórn efnahagsmála, eins og ítrekað hefur verið bent á hér á T24. En það veit ekki á gott að forystumenn í íslensku viðskiptalífi skuli ekki vera tilbúnir til að líta í eigin barm. Ekki voru það stjórnvöld sem tóku ákvörðun um skuldsettar yfirtökur fyrirtækja sem er eitt helsta vandamál sem glímt er við og skýrir þá veiku stöðu sem íslenskt bankakerfi var komið í þegar það hrundi. Ekki voru það stjórnvöld sem tóku ákvörðun fyrir forráðamenn einstakra fyrirtækja að kaupa stöðugt upp önnur fyrirtæki og safna enn frekari skuldum. Ekki geta þeir sem gengu hraðast um gleðinnar dyr ætlast til þess að skattgreiðendur beri stöðugt skaðann. 

Í því uppgjöri sem óhjákvæmilega verður að fara fram er nauðsynlegt, að þeir sem fremstir hafa staðið í rekstri útþenskufyrirtækja, kannist við eigin mistök og ræði þau hreint út. Það er ekki stöðugt hægt að henda steinum úr glerhúsi atvinnurekenda.