T24

Maðurinn sem hefur efni á að gagnrýna
Björn Valur Gíslason, varaformaður Vinstri grænna og fyrrverandi þingmaður, er sannfærður um að hann hafi efni á því að gagnrýna nýja ríkisstjórn, jafnvel áður en hún tekur við völdum. Um skuldamál heimilanna, sem hann og vinstri ríkisstjórnin hafði fjögur ár til að leysa, skrifar Björn Valur á heimasíðu sína:

„Það á sem sagt ekki að gera neitt.”

Björn Valur skrifar líkt og óspjallaður stjórnmálamaður sem hefur í engu borið ábyrgð á síðustu fjórum árum. Þessa vegna telur hann óhætt að halda því fram að ríkisstjórn, sem hefur ekki einu sinni tekið við völdum, hafi skapað meiri óvissu fyrir heimilin en fráfarandi vinsti stjórn:

„Skuldamál heimilanna hafa verið sett í meiri óvissu en nokkru sinni áður frá Hruninu haustið 2008. Nú veit enginn hvað mun gerast. Það er versta staða sem hægt er að hugsa sér að vera í. Heimilin munu bíða eftir að loforð sem ekki er búið að útfæra hvernig á að standa við verður efnt. Fasteingamarkaðurinn mun bíða eftir útfærslum. Fjármálastofnanir munu halda að sér höndum, erlendir aðilar sömuleiðis og bíða eftir útfærslum og því hvort fjármunir þeirra verði öruggir hér á landi.”

Er ekki sanngjarnt að saka manninn, sem Vinstri grænir telja einn af sínum bestu mönnum, um að kasta steini úr glerhúsi?

Jóhanna hæðist að almenningi
„Ég er sátt og ánægð, og ánægð með hvað vel hefur tekist til hjá minni ríkisstjórn. Þessi ríkisstjórn tekur við mjög góðu búi.“

Þetta er sú einkunn sem Jóhanna Sigurðardóttir fráfarandi forsætisráðherra gefur ríkisstjórn sinni.

Í skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika segir að „miðað við óbreytt gengi nægir fyrirsjáanlegur undirliggjandi viðskiptaafgangur næstu ára ekki til að fjármagna samningsbundnar afborganir erlendra lána.“

Ragnar Árnason prófessor í hagfræði, segir í grein sem birtist í Morgunblaðinu að Seðlabankinn sé að benda á að „undirliggjandi viðskiptaafgangur, þ.e. það sem til ráðstöfunar sé til að greiða afborganir af erlendum lánum, nemi einungis um 3% af landsframleiðslu og fari minnkandi, en það sem þurfi til að standa í skilum nemi að meðaltali 5,5% af landsframleiðslu á næstu árum”:

„Hið óbrúaða bil er að því áliti seðlabankastjóra u.þ.b. 2,5-3% af landsframleiðslu árlega á næstu fjórum árum eða nálægt 200 ma. króna miðað við núverandi verðlag.”

Með öðrum orðum: Seðlabankinn er að benda á að Íslendingar geti ekki greitt „samningsbundnar erlendar skuldir sínar að óbreyttu”. Ragnar segir:

„Til að unnt sé að borga þessar skuldir verði þjóðin að herða mittisólina enn á ný. Jafnframt upplýsir hann kröfuhafa þrotabúanna og eigendur hinna „kviku“ krónueigna um að þjóðarbúið eigi ekki gjaldeyri til að skipta kröfum þeirra í erlenda mynt. Vilji þeir fá slíka mynt fyrir kröfurnar verði þeir að slá verulega af þeim.”

Það vekur auðvitað athygli að Seðlabankinn skuli ekki hafa varað við þessari stöðu með afgerandi hætti fyrr en undir lok kjörtímabils ríkisstjórnar Samfylkingar og VG. En Ragnar Árnason dregur þessa ályktun af því sem kemur fram í stöðugleikaskýrslu Seðlabankans:

„Þetta er auðvitað skýr áfellisdómur yfir efnahagsstefnu fráfarandi ríkisstjórnar. Í stað þess að takast á við vandann hefur hún ýtt honum á undan sér. Fjórum og hálfu ári eftir hrun er skuldavandi þjóðarbúsins kominn í svo mikið óefni að seðlabankastjóri telur hann óviðráðanlegan nema gripið verði til nýrra úrræða. Þau úrræði fela óhjákvæmilega í sér nýja kjaraskerðingu nema vænlegra sé talið freista þess að fresta vandanum en á ný með frekari erlendum lántökum.”

Þegar einkunnargjöf Jóhönnu um eigið ágæti er borin saman við það sem Seðlabankinn segir er augljóst að fráfarandi forsætisráðherra er að hæðast að almenningi. Og ekki hefur Seðlabankinn verið sakaður um óvild í garð Jóhönnu og ríkisstjórnar hennar.

Saga og menningararfur í stjórnarsáttmála
Það eru talsverðar fréttir að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar sé sérstaklega vikið að Íslandssögu og þjóðminjum. Ég minnist þess ekki að slíkt hafi áður sést líkt og nú.

Guðmundur Magnússon

Ríkissjónvarpið auglýsir óboðlegt málfar
Ríkisjónvarpið auglýsir ekki neina þætti jafn mikið og þættina sem útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson fær að gera um sjálfan sig. Hvað veldur?

Í morgun (22.05.2013) sagði þessi útvarpsmaður í Virkum morgnum á Rás tvö: Hvað finnst þér um það að núna klukkan kortér yfir ellefu er ný ríkisstjórn sett (svo!) og þá verður gripið fyrir hendur okkar (svo!) hér á Rás tvö og fundinum útvarpað. Ja, hérna. Á ekki Ríkisútvarpið að vera til fyrirmyndar um málfar? Þetta er auðvitað ekki boðlegt málfar í þjóðarútvarpinu.

Eiður Guðnason á vefsíðu sinni  23. maí 2013

Höfuðborgin skilin eftir hjá Framsókn
Þrátt fyrir mikinn kosningasigur í báðum kjördæmum Reykjavíkur verður enginn þingmaður Framsóknarflokksins ráðherra í nýrri ríkisstjórn í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Í kosningunum í apríl síðastliðnum varð Framsóknarflokkurinn annar stærsti flokkurinn í höfuðborginni en á undanförnum árum hefur flokkurinn átt þar erfitt uppdráttar en í síðustu sveitarstjórnarkosningum náði flokkurinn ekki að tryggja sér fulltrúa í borgarstjórn.

Eins og sést á meðfylgjandi mynd jók Framsóknarflokkurinn fylgi sitt verulega í báðum kjördæmum – fékk 16,8% atkvæða í suðurkjördæmi og 16,4% í norðurkjördæmi. Fylgisaukningin var yfir 70% frá kosningunum 2009.

Miðað við úrslit kosninganna og þá staðreynd að Framsóknarflokkurinn náði aftur fótfestu í Reykjavík hefur vakið athygli að hvorki Vigdís Hauksdóttir, oddviti flokksins í suðurkjördæmi né Frosti Sigurjónsson, oddviti í norðurjördæmi, skuli hafa verið skipuð ráðherra. Í viðtali við dv.is viðurkennir Vigdís að hún hafi orðið fyrir vonbrigðum enda hafi hún sóst eftir ráðherraembætti:

„Framsóknarflokkurinn er orðinn næst stærsti flokkurinn í Reykjavík sem hefur ekki gerst áður eftir stórsigur í báðum Reykjavíkurkjördæmunum.“

DV hefur einnig eftir Vigdísi sem talar samkvæmt venju hreint út:

„Maður er kominn til að hafa áhrif. Ég er oddviti líka, þannig að, já, ég sóttist eftir því að verða ráðherra.“

En Vigdís hefur ekki gefist upp:

„Það á eftir að skipa einn ráðherra með haustinu og það á eftir að rétta þennan kynjahalla í ríkisstjórninni að mínu mati.“

Erfitt verkefni nýrrar stjórnar
Erfiðasta verkefni hinnar nýju stjórnar verður að ná tökum á ríkisfjármálum, sem hafa farið gersamlega úrskeiðis síðustu fjögur árin. Vinstri stjórnin sparaði hvergi, svo að heitið gæti, heldur frestaði aðeins framkvæmdum, vanrækti nauðsynlegt viðhald eigna og ýtti þannig vandanum á undan sér.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Heilræði Össurar
Á meðan það sem helst truflar ráðherra er hvernig börnunum þeirra vegnar í lífinu – einsog alla aðra góða foreldra – þá eru þeir í góðum málum.

Hina, þar sem óttinn við þingið, fjölmiðla eða næstu glímu yfirgnæfir aðrar áhyggjur – étur kvíðinn upp.

Össur Skarphéðinsson í pistli á Eyjunni 22. maí 2013

Why is violent crime so rare in Iceland?
As I dragged my bags along Reykjavik’s snowy pavement, an older man in a Jeep pulled alongside me.

“You want to get in?” he asked.

It sounded crazy. Why would I ever get in a stranger’s car?

Despite everything I was taught about riding in cars with strangers, I climbed in the backseat. And I knew nothing bad was going to happen to me.

Andrew Clark

Endurreisn sjálfstæða atvinnurekandans
Engu er líkara en að þungu fargi hafi verið létt af landsmönnum. Tími fyrstu „hreinræktuðu“ vinstri stjórnarinnar er liðinn og innan örfárra daga tekur ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar við lyklavöldunum í Stjórnarráðinu. Væntingarnar eru miklar og kröfurnar sem gerðar eru til ríkisstjórnar endurreisnar eru strangar. Lausn á skuldavanda heimilanna mun litlu skipta ef ekki tekst að byggja að nýju upp samfélag er byggist á frjálsum viðskiptum, hófsemd og sanngirni í skattheimtu þar sem ýtt er undir dugnað og framtakssemi, samhliða því sem stoðir heilbrigðiskerfisins eru reistar við, menntakerfið treyst og stjórnkerfi ríkisins skorið upp. Hugsanleg leiðrétting skulda heimilanna og skattaafsláttur vegna íbúðakaupa, líkt og verðandi stjórnarflokkar gáfu fyrirheit um, leysa lítinn vanda ef undirstöður efnahagslífsins verða áfram feysknar.

Skýr skilaboð

Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks þarf í upphafi að senda skýr skilaboð um að tími nýrra vinnubragða og viðhorfs sé runninn upp. Gildi borgaralegs samfélags verði hafin til vegs og virðingar að nýju. Þannig verði látið af ofsóknum á hendur einstökum atvinnugreinum, hvort heldur er í sjávarútvegi eða í öðrum atvinnuvegum. Skjaldborg um stórfyrirtækin sem reist var í skjóli og með stuðningi vinstri stjórnar, verði felld niður. Vegur sjálfstæða atvinnurekandans, sem hrakinn var út í horn, verði ruddur og heilbrigð samkeppni tryggð á öllum sviðum atvinnulífsins.

Forystumenn og þingmenn nýrrar ríkisstjórnar verða að sýna í orði og á borði að þeir hafi skilning á stöðu þeirra sem reka lítil og meðalstór fyrirtæki í ójafnri samkeppni við stórfyrirtæki sem voru endurreist eftir hrun fjármálakerfisins. Þeir verða að sannfæra þúsundir sjálfstæðra atvinnurekenda, sem hafa lagt allt sitt undir, að tími skilningsleysis og andúðar sé að baki.

Uppskurður skattkerfisins er nauðsynlegur. Lækkun tryggingagjalds, sanngjarnt auðlindagjald, afnám auðlegðarskatts og langtímastefna í skattamálum skiptir þar miklu en fleira þarf að koma til.

Þungar byrðar eftirlitsins

Eftirlitsiðnaðurinn hefur á síðustu árum vaxið Íslendingum upp fyrir höfuð og þar er ekki aðeins við fráfarandi ríkisstjórn að sakast. Það eru ekki síst sjálfstæðu atvinnurekendurnir sem bera byrðarnar. Það kostar litla fiskverkandann hundruð þúsunda á ári að fá opinbera eftirlitsmenn í heimsókn. Eigandi bifreiðaverkstæðisins, sem er með allt uppi á borðum, fær reglulegar heimsóknir frá eftirlitsmönnum hins opinbera, á sama tíma og svört atvinnustarfsemi blómstrar. Margslungið og íþyngjandi eftirlitskerfi í landbúnaði, samhliða flóknu kerfi vörugjalda og óeðlilegum tollum, heldur uppi matarverði á Íslandi og hamlar framþróun í landbúnaði og vinnslu landbúnaðarvara. Í sumum atvinnugreinum er orðið svo flókið að afla sér tilskilinna leyfa að jafnvel fullhugar sem ætla að hasla sér þar völl, gefast upp á hlaupum milli stofnana og eftirlitsaðila. Á stundum virðist sem það sé vandasamara og meira verk að sinna kröfum hins opinbera en að huga að þörfum viðskiptavina.

20 milljarða kostnaður

Samkvæmt skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vann fyrir forsætisráðuneytið árið 2004 var beinn kostnaður fyrirtækja við að framfylgja eftirlitsreglum talinn nema um 7,2 milljörðum króna á verðlagi ársins 2003. (Tekið var fram að líklega væri um vanmat að ræða, þar sem ekki var tekið mið af öllum eftirlitsreglum á öllum sviðum.) Á verðlagi 2012 var þessi beini kostnaður um 12,6 milljarðar króna á ári.

Frá þessum tíma hefur reglum verið fjölgað, þær hertar á flestum sviðum og eftirlit hins opinbera verið aukið. Ekki er óvarlegt að ætla að beinn kostnaður íslenskra fyrirtækja vegna opinbers eftirlits sé 15-20 milljarðar króna. Óbeinn kostnaður vegna minni framleiðni, lakari samkeppnisstöðu og skilvirkni hleypur á milljörðum.

Uppskurður á opinberu eftirlitskerfi, færri og einfaldari reglugerðir, styrkja hag fyrirtækja og auka möguleika til nýsköpunar. Störfum fjölgar, vöruverð lækkar og skatttekjur ríkisins aukast. Allir hagnast.

Bestu eftirmælin

Í liðlega fjögur ár hefur verið sótt að sjálfstæða atvinnurekandanum. Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna taldi eðlilegt og sanngjarnt að þeir sem sem höfðu rekið fyrirtæki sín af skynsemi og forðast óeðlilega skuldsetningu, skyldu axla þungar byrðar í formi hærri skatta, aukins eftirlits og torveldara regluverks.

Árangur í rekstri var litinn hornauga. Í tíð vinstri stjórnarinnar varð það beinlínis hættulegt að skila þokkalegri afkomu og eiga skuldlítil fyrirtæki. Skattmann var aldrei langt undan með refsivöndinn.

Verkefni ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er að gera það aftur eftirsóknarvert að stunda sjálfstæðan atvinnurekstur – lofa einstaklingum að njóta þess sem vel er gert. Það á að hefja athafnamanninn aftur til vegs og virðingar.

Einhver bestu eftirmæli sem ríkisstjórn getur fengið í lok kjörtímabils er að hún hafi unnið að endurreisn sjálfstæða atvinnurekandans og þar með lagt grunninn að efnahagslegri velsæld þjóðarinnar.

Auðlindir og þjóðaratkvæði sett í stjórnarskrá
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, er ákvæði um að vinna að breytingum að stjórnarskránni. Stjórnarflokkarnir eru sammála um að vinna að breytingum á kjörtímabilinu og eru sammála um tvennt:

Að sett verði ákvæði um sameigin þjóðarinnar á auðlindum sem ekki eru í einkaeign.

Að sett verði ákvæði um að kjósendur geti knúið fram þjóðarakvæðagreiðslur í mikilvægum málum.